HSS
HSS

Fréttir

Þorbjörn hf: Aflaverðmæti skipa rúmir fimm milljarðar á árinu
Þriðjudagur 29. desember 2009 kl. 09:50

Þorbjörn hf: Aflaverðmæti skipa rúmir fimm milljarðar á árinu


Á árinu sem er að líða lönduðu skip Þorbjarnar hf í Grindavík  22.846 tonnum að verðmæti 5.191 milljónir króna, samkvæmt því sem fram kemur á heimasíðu félagsins. Afli frystitogara félagsins var 13.610 tonn og línubátar lönduðu 9.236 tonnum.
Botnvörpungurinn Gnúpur GK 11 var aflahæstur þeirra sjö skipa sem félagið gerir út. Afli hans var upp á rúm 5 þúsund tonn og aflaverðmæti 1.250 milljónir króna.
Hrafn GK 111 var með 4.590 tonn og aflaverðmæti upp á 1.185 milljónir króna.

www.thorfish.is

Bílakjarninn
Bílakjarninn