Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Þór væntanlegur til Grindavíkur
Mánudagur 10. febrúar 2020 kl. 09:16

Þór væntanlegur til Grindavíkur

Varðskipið Þór er væntanlegt til Grindvíkur fyrir hádegi og mun leggjast við Miðgarð í Grindavíkurhöfn. Tilgangur með komu varðskipsins til Grindavíkurhafnar er að prufukeyra, í samvinnu við HS Veitur og Grindavíkurhöfn, landtenginu við skipið í spennistöð og dreifikerfi HS Veitna sem staðsett er við Miðgarð ásamt því að skipstjórnendur skipsins máti sig í innsiglingu og höfn.

Á vef Grindavíkurbæjar segir að um sé að ræða æfingu ef til þess kemur að koma þurfi á varaafli ef rafmagn fer af sveitarfélaginu í lengri tíma. Þetta er í fyrsta sinn sem varðskipið kemur til Grindavíkurhafnar. Varðskipið var jafnframt í fyrsta skipti nýtt sem hreyfanleg aflstöð þegar ragmagn fór af Dalvík í óveðrinu í desember en Þór getur flutt 2MW af rafmagni í land.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024