Þokuloft við ströndina, léttskýjað inn til landsins
Veðurspá fyrir Faxaflóa: Norðvestan 3-8 m/s og léttskýjað, þoka við ströndina, einkum í nótt. Hiti 15 til 22 stig á morgun, en 10 til 15 við sjávarsíðuna.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag:
Norðlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s og víða léttskýjað inn til landsins, en þokuloft við ströndina. Hiti 13 til 22 stig, hlýjast SV- og V-lands, en mun svalara á annesjum fyrir norðan og austan.
Á föstudag:
Vestlæg átt og bjart veður, en þykknar upp vestantil. Hiti 12 til 20 stig, hlýjast SA- og A-lands.
Á laugardag og sunnudag:
Rigning með köflum og milt veður.
Af www.vedur.is