Bygg
Bygg

Fréttir

Þokuloft og dálítil súld
Þriðjudagur 13. maí 2008 kl. 08:54

Þokuloft og dálítil súld


Veðurspá fyrir Faxaflóa gerir ráð fyrir hægri suðaustlægri átt og þokulofti eða dálítilli súld, einkum úti við ströndina. Léttir víða til að deginum. Hiti 8 til 17 stig, svalast við sjávarsíðuna.
Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á fimmtudag:
Hæg norðlæg átt. Dálítil súld N- og A-lands, en léttskýjað suðvestantil á landinu. Hiti 5 til 15 stig, hlýjast á SV-landi.

Á föstudag og laugardag:
Austlæg átt og dálítil væta á S- og V-landi, en stöku él NA-lands. Hiti 5 til 10 stig, en 0 til 5 norðaustantil á landinu og þar eru líkur á næturfrosti.

Á sunnudag og mánudag:
Útlit fyrir svipað veður áfram.

Af www.vedur.is

Bílakjarninn
Bílakjarninn