Þokkaleg byrjun á dragnót í Bugtinni
Dragnótabátarnir hafa verið að koma til hafnar í Keflavík undir kvöld eftir fyrsta veiðidag á kolaveiðum í svokallaðri Bugt í Faxaflóa.Sjómenn eru þokkalega ánægðir eftir fyrsta daginn en sandkolinn var stór og fallegur.Bátarnir vöku athygli bæjarbúa undir kvöld þar sem þeir létu reka á Stakksfirði meðan gert var að aflanum.