HSS
HSS

Fréttir

Þögul mótmæli í Skrúðgarðinum
Þriðjudagur 5. október 2010 kl. 14:46

Þögul mótmæli í Skrúðgarðinum

Styrktarfélag Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, Félag eldri borgara á Suðurnesjum og Starfsmannafélag Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja efna til þögullar mótmælastöðu í Skrúðgarðinum í Reykjanesbæ, fimmtudaginn 7. október kl. 20:00.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Mótmælt er harðlega tilögum um niðurskurð á framlögum ríkisins til rekstrar HSS fyrir árið 2011. Þetta skapar óöryggi og óvissu fyrir sjúklinga og fæðandi konur. Ekki hefur sýnt fram á að flutningur á sjúklingum og fæðandi konum til Reykjavíkur dragi úr kostnaði ríkisins. Þá er það víst að segja verður upp fjölda starfsmanna hjá HSS og verður varla ábætandi þar sem atvinnuleysi á Suðurnesjum er hvað mest á landinu. Framlög ríkisins til HSS í samanburði við önnur sjúkrahús hafa verið lægst og eru enn lægst - og ekki hefur verið tekið mið af nærveru sjúkrahússins við Keflavíkurflugvöll.

Við skorum á alla Suðurnesjamenn að mótmæla þessu með því að mæta í Skrúðgarðinn við sjúkrahúsið í Reykjanesbæ á fimmtudaginn kemur kl. 20:00.
Þetta verða þögul mótmæli og er æskilegt að mótmælendur mæti með ljós, ennis- eða vasaljós.

Upplýsingar gefur formaður FEBS í síma 896-1064, formaður styrktarfélags HSS í síma 421-1064 og formaður starfsmannafélag HSS í síma 661-7971.