Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Þöggun í Reykjanesbæ verður ekki liðin
Reykjanesbær.
Miðvikudagur 20. desember 2017 kl. 05:00

Þöggun í Reykjanesbæ verður ekki liðin

-Bæjaryfirvöld í Reykjanesbæ bregðast við #metoo

Bæjaryfirvöld í Reykjanesbæ vilja árétta og renna styrkari stoðum undir þá afdráttarlausu stefnu að kynbundin og kynferðisleg áreitni eða ofbeldi af nokkru tagi sé ekki liðið á vinnustöðum sveitarfélagsins. Þetta kemur fram í bókun sem lögð var fram á bæjarstjórnarfundi í gær, 19. desember. Bókunin var lögð fram í ljósi þeirrar mikilvægu umræðu sem átt hefur sér stað í samfélaginu síðustu misseri þar sem fjöldi kvenna hefur stigið fram og lýst reynslu sinni undir myllumerkinu #metoo.

Í starfsmannastefnu Reykjanesbæjar segir að traust og virðing séu undirstaða samskipta. Samskipti sem með orðum, látbragði eða atferli, sem ógni, trufli eða ögri öðrum á vinnustaðnum séu óásættanleg. Leggi starfsmaður annan samstarfsmann í einelti eða sýni honum kynferðislega áreitni, teljist sá hinn sami vera að brjóta grundvallarreglur samskipta á vinnustað. Slíkt geti leitt til áminningar og brottreksturs úr starfi.
Kynbundin áreitni er, samkvæmt reglugerð nr. 1000/2004, hvers kyns ósanngjörn og/eða móðgandi hegðun, sem tengist kyni þess sem fyrir henni verður, er í óþökk og hefur áhrif á sjálfsvirðingu þess sem fyrir henni verður og er haldið áfram þrátt fyrir að gefið sé skýrt í skyn að hegðunin sé óvelkomin. Áreitnin getur verið líkamleg, orðbundin eða táknræn. Þá er kynferðisleg áreitni hvers kyns ósanngjörn og/eða móðgandi kynferðisleg hegðun sem er í óþökk.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Ábyrgð Reykjanesbæjar sem vinnuveitanda nálægt eitt þúsund einstaklinga er afar rík og leggja bæjaryfirvöld því ríka áherslu á að stjórnendur í sveitarfélaginu fái þjálfun og aðstoð við að greina og koma með kerfisbundnum hætti í veg fyrir kynferðislega og kynbundna áreitni í sínu nærumhverfi.
Hvers kyns þöggun eða afneitun gagnvart þessu málefni verður ekki liðin og bera stjórnendur, bæjaryfirvöld og aðrir sem kunna að verða varir við framkomu af þessu tagi sameiginlega ábyrgð á að uppræta hana.