Bygg
Bygg

Fréttir

Þjónustusamningur við Gimli framlengdur
Mánudagur 17. október 2005 kl. 15:16

Þjónustusamningur við Gimli framlengdur

Þjónustusamningur Reykjanesbæjar við Karen Valdemarsdóttur um rekstur leikskólans Gimli í Njarðvíkurhverfi hefur verið framlengdur til þriggja ára, en málið var tekið fyrir á fundi fræðsluráðs í morgun.

Karen tók við rekstrinum rétt fyrir síðustu áramót og var í fyrstu gert ráð fyrir árs reynslutíma, en aðilarnir hafa ekki beðið boðanna og hafa samþykkt að halda samstarfinu áfram.

Að sögn Karenar hefur reynslan af rekstrinum verið afar góð. „Þetta hefur verið ótrúlega spennandi og skemmtilegt. Það er greinilegt að við höfum verið að standa okkur vel fyrst bærinn vill halda áfram samstarfinu.“

Á fundi fræðsluráðs í morgun komu einnig fram tölulegar upplýsingar varðandi börn á leikskólaaldri á þjónustusvæði Fræðsluskrifstofu Reykjanesbæjar í október 2005 og upplýsingar um fjölda starfsfólks, stöðugilda og fjölda fagfólks.

Alls starfa 167 manns í leikskólum bæjarins, sem er fjölgun um þrjá á milli ára. Hlutfall fagsfólks er 38%. Alls eru 14 starfsmenn leikskóla í kennaranámi við KHÍ og HA í vetur. Í framhaldsnámi eru sex.
Rúmlega 94% barna í bænum fædd 2000- 2003 eru í leikskóla. Engin tveggja ára börn eða eldri eru á biðlista í október.

VF-Mynd/Þorgils Karen og Árni Sigfússon, bæjarastjóri, við undirritun fyrri samningsins
Bílakjarninn
Bílakjarninn