Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Þjónustumiðstöðvar Almannavarna hættar starfsemi
Mánudagur 3. júní 2024 kl. 11:37

Þjónustumiðstöðvar Almannavarna hættar starfsemi

Þjónustumiðstöðvar Almannavarna í Tollhúsinu og í Reykjanesbæ hættu starfsemi þann 1. júní síðastliðinn. Frá 15. nóvember sl. hefur ríkislögreglustjóri, í samstarfi við Rauða krossinn og Grindavíkurbæ, rekið þjónustumiðstöð Almannavarna í Tollhúsinu vegna jarðhræringanna á Reykjanesi.

Verkefni þar hafa falist í stuðningi við íbúa Grindavíkurbæjar og boðið hefur verið upp á samveru og kaffitár ásamt leikhorni fyrir börn. Rauði krossinn hefur boðið upp á sálfélagslegan stuðning og félagsleg ráðgjöf hefur verið í höndum starfsfólks Grindavíkurbæjar. Upplýsingagjöf, fræðsla og ráðgjöf af ýmsu tagi hefur verið veitt og var sá stuðningur útfærður í samræmi við þarfir og óskir íbúa Grindavíkurbæjar. Um mánaðamótin hætti starfsemi þjónustumiðstöðva Almannavarna í Tollhúsinu og í Reykjanesbæ.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Bæjarskrifstofur Grindavíkurbæjar verða áfram starfræktar í Tollhúsinu og er opnunartíminn frá 10-16 alla virka daga. Þangað er hægt að hafa samband og bóka viðtal við félagsráðgjafa í síma 420-1100. Jafnframt mun Rauði krossinn hafa mánudagskaffi fyrir Grindvíkinga á mánudögum milli kl. 14-16 að Smiðjuvöllum 9 í Reykjanesbæ út júní.

Þjónustuteymi sem á að styðja við íbúa Grindavíkur hefur verið sett á fót. Teymið verður starfrækt á vegum framkvæmdanefndar um málefni Grindavíkurbæjar og tekur formlega til starfa í dag, 3. júní.