Þjónustumiðstöð Reykjanesbæjar hirðir jólatré
Starfsmenn Þjónustumiðstöðvar Reykjanesbæjar munu annast hirðingu jólatrjáa frá og með deginum í dag til 14. janúar.
Þeir íbúar sem vilja nýta sér þessa þjónustu eru vinsamlegast beðnir að setja jólatrén út fyrir lóðamörk og hafa samband við Þjónustumiðstöð í síma 421 1552 og verða þau þá fjarlægð.
Eftir 14. janúar eru íbúar beðnir um að snúa sér til Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja. Þá eru íbúar sem fyrr hvattir til að hirða upp leifar af skoteldum og blysum í nágrenni sínu.
Af reykjanesbaer.is