Þjónustumiðstöð fyrir Grindvíkinga opnuð í Tollhúsinu
Þjónustumiðstöð Almannavarna fyrir Grindvíkinga var opnuð 15. nóvember síðastliðinn vegna jarðhræringa á Reykjanesi og er hún staðsett í Tollhúsinu við Tryggvagötu í Reykjavík. Miðstöðin er opin alla virka daga kl. 10-18. Undanfarna daga hefur starfsemin og þjónustan tekið nokkrum breytingum og dag hvern er verið að auka við þjónustuna svo að þjónustumiðstöðin geti sem best komið til móts við þarfir íbúa Grindavíkur. Verkefni þjónustumiðstöðvar til þessa hafa einkum falist í stuðningi við íbúa Grindavíkurbæjar og aðra sem á einhvern hátt hafa orðið fyrir áhrifum jarðhræringanna á Reykjanesi og er komin upp góð aðstaða fyrir börn og barnafjölskyldur. Grindvíkingar hafa í ríkum mæli nýtt sér þjónustuna sem í boði er og sú þjónusta vex með degi hverjum.
