Þjófnaður úr Keflavíkurkirkju
Sakna fartölvu og skjávarpa
Þjófnaður á fartölvu og skjávarpa úr Keflavíkurkirkju var nýlega tilkynntur til lögreglunnar á Suðurnesjum. Tækin höfðu verið geymd á skrifstofu í kirkjubyggingunni. Þegar gengið hafði verið úr skugga um að enginn af starfsmönnum kirkjunnar hefði tekið tækin til handagagns var ljóst að þarna höfðu óprúttnir aðilar verið á ferð og látið greipar sópa. Lögreglan rannsakar nú málið.