Þjófar í fjáröflun?

Sjónarvottar segjast hafa séð tvo unga menn á aldrinum 16-20 á hvítum litlum bíl með svörtum röndum þar sem þeir hrifsuðu flöskur og dósir úr gámnum. Daginn eftir sást til þeirra í Dósasel þar sem þeir seldu stolna varninginn.
Forsvarsmenn unglingastarfsins í Sandgerði vilja hvetja fólk til að vera á varðbergi hvað varðar svona ósmekklegan þjófnað og bendir á að þetta er fjáröflun barnanna.
Allir þeir sem geta gefið upplýsingar um málið eru beðnir að hafa samband við Lögregluna í Keflavík.