Þjófar fóru víða og stálu verðmætum
Farið inn um svalahurð í íbúðarhúsnæði í Reykjanesbæ og þaðan stolið Dell fartölvu og síma.
Farið inn um svalahurð í íbúðarhúsnæði í Reykjanesbæ og þaðan stolið Dell fartölvu og síma. Einnig var brotist inn í bifreið og bílaútvarpi með geislaraspilara stolið, auk verkfærakassa með verkfærum.
Í gær sögðum við einnig frá því að þjófar hefðu brotist inn í annað íbúðarhúsnæði á svæðinu.
Lögreglan á Suðurnesjum rannsakar málin þrjú.