Þjófagengi handtekið við innbrot í Grindavík
Lögreglan á Suðurnesjum stóð í nótt þrjá unga menn að innbroti í tískuvöruverslun í Grindavík. Tveir mannanna höfðu brotið rúðu í verslunarmiðstöð og farið þar inn í eina verslun, en sá þriðji beið í bifreið fyrir utan.
Þeir tveir sem fóru inn í verslunina náðu að brjóta glerskáp og voru búnir að setja eitthvað af skartgripum í poka þegar lögreglan kom á staðinn.
Mennirnir voru handteknir og gista nú fangageymslur. Þeir verða yfirheyrðir í dag. Þeir eru á aldrinum 17, 20 og 23 ára.