Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Þjófagengi handsamað á Suðurnesjum
Föstudagur 21. desember 2012 kl. 11:39

Þjófagengi handsamað á Suðurnesjum

- mikið magn þýfis haldlagt

Lögreglan á Suðurnesjum hefur stöðvað þjófagengi og haldlagt mikið magn þýfis. Tveir karlmenn, annar á fertugsaldri og hinn á fimmtugsaldri voru handteknir og hafa sætt gæsluvarðhaldi. Við leit í tveimur bifreiðum, sendibifreið og jeppabifreið, sem mennirnir höfðu til umráða fannst þýfi úr tveimur innbrotum í Reykjanesbæ skömmu áður. Um var að ræða fjórhjól og verkfæri.

Vegna rannsóknarhagsmuna krafðist lögreglustjórinn á Suðurnesjum þess fyrir Héraðsdómi Reykjaness að mennirnir yrðu úrskurðaðir í gæsluvarðhald. Dómari varð við þeirri kröfu og voru mennirnir úrskurðaðir í gæsluvarðhald fyrr í mánuðinum. Þeir eru nú báðir lausir úr haldi. Vegna rannsóknar málsins gerði lögreglan á Suðurnesjum umfangsmiklar húsleitir í íbúðarhúsnæði, verkstæðis- og geymsluhúsnæði og bifreiðum sem mennirnir höfðu til umráða á Suðurnesjum auk þess sem lögreglan á Sauðárkróki var fengin til aðstoðar varðandi leitir á tveimur stöðum í Skagafirði en rannsóknin leiddi í ljós að þýfi hafði verið flutt þangað til geymslu.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Hald hefur verið lagt á ýmis konar tæki og muni vegna rannsóknar málsins svo sem tvö fjórhjól, bílalyftu, fjórar kerrur, hjólbarða, felgur, verkfæri, skráningarnúmer af ökutækjum, nokkurn fjölda bílageislaspilara og fleira. Lögregla vinnur að skoðun fjölda annarra haldlagðra muna. Má ætla að málið varði að minnsta kosti átta mál á Suðurnesjum og á höfðuborgarsvæðinu. Um er að ræða innbrot og þjófnaði, fjárdrátt, skjalafals og nytjastuld.

Nokkrir hafa verið yfirheyrðir vegna tengsla við málið auk þeirra tveggja sem handteknir voru í upphafi.
Rannsókn málsins stendur enn yfir hjá lögreglunni á Suðurnesjum en grunur leikur á að annar hinna handteknu hafi verið afkastamikill þýfissali og jafnvel er talið að hann hafi selt þýfi úr landi.