Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Þjóðin ber mikið traust til slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna
Mánudagur 17. nóvember 2008 kl. 15:49

Þjóðin ber mikið traust til slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna

- Viðhorfskönnun Capacent Gallup -



Yfir 96 prósent bera mikið traust til slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna. Með hæstu gildum í mælingum Gallup. 97 prósent telja Eldvarnaátakið mikilvægt.

Þjóðin ber gríðarlega mikið traust til slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, mun meira en yfirleitt mælist í garð stétta og stofnana. Þetta kemur fram í viðhorfskönnun sem Capacent Gallup gerði fyrir LSS og Brunamálastofnun í september síðastliðnum. Þá kemur fram að svarendur telja nær undantekningarlaust að árlegt Eldvarnaátak LSS sé mikilvægt. Eldvarnaátakið 2008 hefst í næstu viku.

- Við erum ákaflega þakklátir fyrir þessa traustsyfirlýsingu frá þjóðinni. Það er mikilvægt fyrir okkar menn að fá þessi skilaboð. Þau styrkja okkur í daglegum störfum og forvarnastarfi, segir Sverrir Björn Björnsson, formaður LSS, um niðurstöður könnunarinnar.

Alls sögðust 96,3 prósent svarenda bera mjög mikið eða frekar mikið traust til slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna. Traustið mælist að meðaltali 4,5 á kvarðanum 1-5. Meðaltalið í sambærilegum mælingum Capacent Gallup er 3,5 en lægsta gildi 1,8. Þeir fáu sem ekki segjast bera mjög mikið eða frekar mikið traust til stéttarinnar svara yfirleitt “hvorki né” en neikvæðni er vart mælanleg.

Enn fleiri, eða 97 prósent, sögðust telja Eldvarnaátak LSS fyrir jól og áramót vera mjög mikilvægt (73,9%) eða frekar mikilvægt (23,2%). Eldvarnaátakið 2008 hefst í næstu viku en þá heimsækja slökkviliðsmenn um fimm þúsund grunnskólabörn um allt land, fræða þau um eldvarnir og gefa þeim kost á að taka þátt í Eldvarnagetrauninni ásamt fjölskyldum sínum. Fræðslu um eldvarnir heimilanna verður jafnframt beint til alls almennings.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

(fréttatilkynning)