Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Þingmenn: Leiðréttið mismunun eða hafnið fjárlögum
Mánudagur 18. nóvember 2013 kl. 10:10

Þingmenn: Leiðréttið mismunun eða hafnið fjárlögum

Bæjarráð Sveitarfélagsins Garðs beinir þeim eindregnu tilmælum til heilbrigðisráðherra og fjármálaráðherra að mismunun í heilbrigðisþjónustunni verði leiðrétt. Bæjarráð hvetur alla þingmenn, en þó sérstaklega þingmenn Suðurkjördæmis til þess að hafna samþykkt fjárlaga ef ekki verði leiðrétt sú mismunun sem á sér stað í fjárveitingum til grunn heilbrigðisþjónustu, sem skal gilda jafnt fyrir alla landsmenn. Þetta kom fram á síðasta fundi bæjarráðs í Garði. Þá segir að bæjarráð Sveitarfélagsins Garðs taki undir ályktun bæjarstjórnar Reykjanesbæjar um sama efni frá 12. nóvember sl.

Samkvæmt lögum er Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS) alfarið rekin á kostnað ríkisins. Áætluð framlög ríkisins til Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja á árinu 2014 eru a.m.k. helmingi lægri á hvern íbúa en til annarra heilbrigðisstofnana, að undanskilinni Heilbrigðisstofnun Suðurlands. Þessi grófa mismunun milli landsmanna hefur viðgengist í fjölda mörg ár og er alls ekki líðandi.

HSS er eina stofnunin á Suðurnesjum sem sinnir grunn heilsugæsluþjónustu fyrir íbúana og hefur m.a. verið þekkt fyrir vandaða þjónustu fæðingardeildar. Með lokun skurðstofu fyrir þremur árum var í raun skellt í lás fyrir fullkominn rekstur fæðingardeildar og fjölmarga aðra þætti í rekstri HSS. Sú þjónusta sem starfsfólk HSS leggur sig enn fram um að veita er til mikillar fyrirmyndar.

Stefna um hlutverk HSS í þjónustu við íbúa á Suðurnesjum hefur sveiflast eftir áherslum stjórnvalda hverju sinni án þess að sveitarfélögin hafi fengið tækifæri til að koma þar að máli. Þessi hringlandaháttur hefur m.a. orðið til þess að veikja starfsemi HSS.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024