Þingmenn funda um orkumál í Bláa Lóninu

Þjóðirnar voru sammála um að starfa náið saman í orkumálum með sérstakri áherslu á vetnisorku. Þar var og ákveðið að stofna samnorræn vetnissamtök sem munu vinna markvisst að vetnisvæðingu.
Hjálmar Árnason, þingmaður Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi, sat ráðstefnuna og sagði hann að fjölmargar athyglisverðar hugmyndir hefðu komið fram á fundinum. „Á ráðstefnunni var fjallað um fjölmargar leiðir til að framleiða orku á umhverfisvænan hátt og hafa Færeyingar til dæmis verið að gera tilraunir með raforkuframleiðslu með vindmyllum og einnig með því að virkja sjávaröldur.“
Ráðstefnunni lauk upp úr hádegi og héldu fundarmenn eftir það til hádegisverðar í Bláa Lóninu og að honum loknum fengu þeir sér stutt bað í lóninu. Að lokum var farið til höfuðborgarinnar þar sem hópurinn hélt í siglingu með Hafsúlunni og snæddi kvöldverð úti á Faxaflóa.