Þið heyrðuð rétt - Norskar þotur komnar
Norðmenn sjá um loftrýmisgæslu við Ísland í júní
	Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland hófst að nýju síðasta mánudag en þá kom flugsveit norska flughersins til landsins.
	
	Alls munu um 70 liðsmenn taka þátt í verkefninu og til viðbótar starfsmenn frá stjórnstöð NATO í Uedem í Þýskalandi. Flugsveitin kemur með fjórar F-16 orrustuþotur til landsins. Þær munu taka á loft frá Keflavíkurflugvelli tvisvar á dag virka daga en ekkert verður flogið um helgar.
	
	Verkefnið verður framkvæmt með sama fyrirkomulagi og fyrri ár og í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun NATO fyrir Ísland. Ráðgert er að verkefninu ljúki fyrir lok júní. Það er framkvæmt af starfsmönnum Landhelgisgæslu Íslands á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli.
	
	
	
	 

 
	
						 
	
					

 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				