Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

Þeír á einni vespu reyndu að stinga lögreglu af
Sunnudagur 7. apríl 2019 kl. 07:00

Þeír á einni vespu reyndu að stinga lögreglu af

Þrjá drengi á einni vespu bar fyrir augu lögreglumanna á Suðurnesjum í vikunni. Gerð var tilraun til að stöðva för þeirra með því að blikka aðalljósum á lögreglubifreiðinni en þeir sinntu því ekki heldur óku gegn einstefnu. Sást til þeirra þar sem þeir hentu sér af vespunni, létu hana inn í garð og hlupu í burtu.

Skömmu síðar hittu lögreglumenn tvo þeirra á gangi en þeir vildu ekki kannast við neitt. Vespan var því haldlögð og komið fyrir á lögreglustöð.

Þegar líða tók á daginn kom einn piltanna og vildi sækja hjólið. Honum var tilkynnt að hann fengi það ekki afhent nema koma með forráðamann með sér, sem hann gerði skömmu síðar.

Málið var tilkynnt til barnaverndar.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024