Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

  • Þarf öruggari leið fyrir hjólandi til Reykjavíkur
    Þessi mynd var tekin á Sandgerðisvegi árið 2004 af hjólandi vegfaranda.
  • Þarf öruggari leið fyrir hjólandi til Reykjavíkur
Föstudagur 23. september 2016 kl. 11:52

Þarf öruggari leið fyrir hjólandi til Reykjavíkur

Mikil og brýn þörf er á að koma upp öruggri leið fyrir hjólreiðamenn milli höfuðborgarsvæðisins og Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli. Þau mál hafa nokkuð verið skoðuð, m.a. hefur verið unnin úttekt og hönnun á lögn á slíkri samgönguleið. Í þeim hugmyndum er gert ráð fyrir að beina allri umferð hjólandi vegfarenda af Reykjanesbraut inn á stíga og vegi, m.a. yfir Vogastapa og eftir Vatnsleysuströnd.

„Þetta er dýrt verkefni, og ekki á færi fámenns sveitarfélags eins og Voga að fjármagna slíka framkvæmd. Mikilvægt er því að stuðla að aðkomu aðila eins og Vegagerðarinnar, Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða til að hrinda þessu mikilvæga verkefni í framkvæmd,“ segir Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri í Vogum í pistli sem hann skrifar í vikulegt fréttabréf sitt í Vogum.

Hann segir einnig: „Við sem ökum Reykjanesbrautina að staðaldri sjáum nánast daglega fjöldann allan af hjólreiðamönnum, sem puða á vegöxlinni þar sem hröð bílaumferðin fer hjá. Það er nokkuð ljóst út frá umferðaröryggissjónarmiðum að hjólreiðar og hraðbrautarakstur er nokkuð sem ekki fer vel saman“.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024