Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Þannig var það
Kristrún Guðmundsdóttir og forsíða bókarinnar.
Miðvikudagur 5. apríl 2023 kl. 07:55

Þannig var það

Espólín forlag kynnir nýja bók: Þannig var það eftir norska höfundinn Jon Fosse. Um er að ræða leikrit- eintal, í einum þætti og kom fyrst út 2019. Þýðandi er Suðurnesjakonan Kristrún Guðmundsdóttir.
Jon Fosse (f. 1959)  er eitt þekktasta leikritaskáld Norðmanna á eftir Henrik Ibsen. Leikverk hans hafa verið sviðsett um allan heim, þar af þrjú á Íslandi. Jon hefur skrifað skáldsögur, ljóðabækur, barnabækur, ritgerðasöfn auk þess að vera þýðandi og hefur unnið til fjölda verðlauna bæði í Noregi og erlendis. Árið 2015 hlaut hann Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir þríleikinn Andvaka, Draumar Ólafs og Kvöldsyfja ( Hjalti Rögnvaldsson þýddi á íslensku).
Útgáfukynning verður í Gunnarshúsi við Dyngjuveg (hús rithöfunda) 18. apríl kl. 17.00.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024