Þakplötur fuku af fjölbýlishúsi í Grindavík
Björgunarsveitin Þorbjörn í Grindavík var kölluð út sídegis vegna foks en bárujárnsklæðning hafði fokið af horni tveggja hæða fjölbýlishúss við Aðalgötuna í Grindavik. Björgunarsveitarmenn komu fargi á það sem fokið hafði svo ekki hlytist frekara tjón. Festu björgunarsveitarmenn plötur sem voru eftir á hliðinni. Mjög hvasst varð þegar tilkynningin barst, austan 19 metrar á sekúndu og hvassara í hviðum.
Ljósmynd/Pétur Breiðfjörð: Björgunarsveitarmenn í Grindavík að störfum við að festa þakplötur á fjölbýlishús sem voru farnar að fjúka í mjög hvössu veðri í Grindavík í kvöld.