Þakkaði lögreglu fyrir handtöku sína
Við hefðbundið umferðareftirlit í vikunni kom lögreglan á Suðurnesjum auga á bifreið sem ekið var með þeim hætti að grunur vaknaði um ölvunarakstur. Þegar haft var tal af ökumanni lagði megna áfengislykt úr bifreiðinni og viðurkenndi hann að vera ölvaður. Það staðfesti öndunarsýni og var hann handtekinn og færður á lögreglustöð.
Daginn eftir kom ökumaðurinn svo á stöðina og sótti bifreið sína. Hann þakkaði lögreglu handtöku sína kvöldinu áður, því þar með hefði þessi óheillavænlega för hans verið stöðvuð.