Bygg
Bygg

Fréttir

Þakkaði lífgjöfina
Mánudagur 25. maí 2020 kl. 11:14

Þakkaði lífgjöfina

Hin sextán ára María Kristín Ragnarsdóttir fékk hjartastopp og hneig skyndilega niður heima hjá sér þar sem hún hafði verið á æfingu vegna COVID-19 ástandsins. Atvikið átti sér stað þann 24. apríl sl. og var óskað eftir sjúkrabíl frá Brunavörnum Suðurnesja. Strákarnir á C-vaktinni fóru í útkallið. „Vel tókst til við endurlífgun og unnu allir viðbragðsaðilar ótrúlega vel saman og komst hún til meðvitundar og var flutt á Landspítalann,“ segir á fésbókarsíðu Brunavarna Suðurnesja.

Á laugardaginn, 23. maí, kom María Kristín á vaktina hjá C-vaktinni og heilsaði upp á þá með foreldrum sínum. Kom hún og þakkaði hún þeim lífgjöfina og afhenti þeim fallega mynd.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

„Það er ekki ofsagt að þetta sé útkall sem menn muna vel eftir því ekki er algengt að ungt fólk fari í hjartastopp og ekki alltaf sem svona vel tekst til. Sýnir þetta vel hvað góðir og vel þjálfaðir viðbragðsaðilar er mikilvægir í samfélaginu okkar,“ segir á síðu Brunavarna Suðurnesja.