Þakka starfsmönnum, verktökum og íbúum á tímum vetrarveðurs og snjóalaga
Óvenju erfið skilyrði hafa verið að undanförnu vegna vetrarveðurs og mikilla snjóalaga í Suðurnesjabæ sem hefur valdið miklu álagi og vinnu hjá mörgum. Bæjarstjórn þakkar starfsmönnum Suðurnesjabæjar og verktökum fyrir vel unnin verk við snjómokstur og hreinsun gatna og svæða. Jafnframt þakkar bæjarstjórn íbúum fyrir þolinmæði og gott samstarf við krefjandi aðstæður.
Þetta kemur fram í bókun sem lögð var fram á síðasta fundi bæjarstjórnar Suðurnesjabæjar.