Þakka fyrir hreinsun fjörunnar við Garðskagavita
Bæjarráð Sveitarfélagsins Garðs þakkaði á síðasta fundu sínum Tómasi Knútssyni og Bláa hernum fyrir frábært framtak við að hreinsa fjöruna hjá Garðskagavita.
„Tómas hefur sýnt það á undanförnum árum að nauðsynlegt er að hreinsa fjöruna reglulega og er lagt til að leitað verði samstarfs við Bláa Herinn um umhirðu fjörunnar“, segir í fundargerð bæjarráðs.