Safnahelgi
Safnahelgi

Fréttir

Þak losnaði vegna óveðurs
Sunnudagur 10. apríl 2011 kl. 17:01

Þak losnaði vegna óveðurs

Þakplötur losnuðu af ókláruðu húsi við Breiðhól í Sandgerði í dag en mikið óveður liggur nú yfir Suðurnesjunum. Kallað var til björgunarsveitar Sandgerðis og festu þeir þakplötur sem höfðu losnað frá. Þetta er fyrsta útkall björgunarsveitarinnar í Sandgerði í dag en búast má við að þau verði fleiri ef veðurofsinn heldur áfram. Lögreglan hvetur fólk til að binda niður lausa hluti sem gætu fokið.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

VF-Myndir: Siggi Jóns

Björgunarsveitin Sigurvon var skjót á staðinn og kom í veg fyrir að plöturnar færu út í veður og vind.

Bílakjarninn
Bílakjarninn