Það verður fjör á þrettándanum
Árleg álfabrenna og flugeldasýning verður haldin við Iðavelli laugardaginn 6. janúar. Skrúðgangan leggur af stað frá Reykjaneshöllinni kl. 19:30. Gengið verður upp Flugvallarveg og inn á Iðavelli en dagskráin þar hefst kl. 20.
Boðið verður upp á andlitsmálningu í Reykjaneshöllinni kl. 18:30 en eftir að dagskrá lýkur við Iðavelli, verður gengið fylktu liði niður í Höll þar sem boðið verður upp á heitt kakó í tilefni dagsins. Þar hefst síðan formleg dagskrá kl. 21:15. Harmoníkuleikarar munu þenja nikkurnar, Rúnni Júl tekur lagið og keflvískar hljómsveitir stíga á stokk og rífa upp stemninguna. Ekki má gleyma yngstu börnunum en hoppikastala verður komið upp fyrir þau.