HSS
HSS

Fréttir

Það sem um var samið 17. febrúar sl. er horfið og gott betur
Þriðjudagur 18. mars 2008 kl. 01:37

Það sem um var samið 17. febrúar sl. er horfið og gott betur

„Það er gömul saga og ný að beita gengisfellingum til að hirða aftur umsamdar kauphækkanir. Það kann að vera megin ástæða þessa að stjórnvöld vilja halda í krónuna, til að geta velt aðsteðjandi efnahagsvanda yfir á launafólk, með kjaraskerðingum í formi gengisfellinga. Sú er nú raunin. Gengið er látið falla“, segir Skúli Thoroddsen, framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins í pistli á heimasíðu sambandsins..

Skúli heldur áfram og segir: „Ef hér á að vera frelsi í gjaldeyrisviðskiptum og frjálst flæði fjarmagns er vonlaust að búa við smámynt eins og íslensku krónuna. Svoleiðis mynt er e.t.v. brúkleg í Matador í lokuðu herbergi, en ekki í alþjólegum viðskiptum. Tilraunin frá 2001 um flotgengi og verðbólgumarkmið var dæmd til að mistakast. Peningamálastefna stjórnvalda hefur beðið afhroð. Ónýt króna í ónýtum Seðlabanka. Spurningin er sú hversu lengi menn vilja berja höfði sínu við stein. Fyrir allan almenning er peningamálastefna Seðlabankans martröð og í raun rothögg fyrir þá sem tekið hafa lán í erlendri mynt.

Sá sem tók 5 milljón króna gjaldeyrislán í fyrra og borgaði 45 þúsund kr. á mánuði í afborganir, borgar núna tæp 90 þúsund. Fjölskylda sem tók 20 milljón króna lán til íbúðakaupa í fyrra, jók skuldir sínar um milljón í morgun. Yfir vofandi verðhækkanir á öllum innflutum varningi eru svo næsta vers. Bensínið og olía hækkar þó líklega strax í dag. Það sem um var samið 17. febrúar sl. er horfið og gott betur. Kjaraskerðingin er staðreynd“ segir Skúli Thoroddsen að endingu.

Bílakjarninn
Bílakjarninn