Bygg
Bygg

Fréttir

Það er mjög brýnt að ná niðurstöðu í þessu máli í þessum mánuði
Fimmtudagur 10. október 2002 kl. 16:26

Það er mjög brýnt að ná niðurstöðu í þessu máli í þessum mánuði

-segir Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra í samtali við Víkurfréttir

Undanfarna mánuði hefur Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra fylgst með heilsugæslulæknum víða á landinu segja upp störfum. Samkvæmt lögum liggur samningsumboð í kjaradeilu heilsugæslulækna í höndum Kjaranefndar, sem mun að sögn ráðherra, úrskurða í deilunni innan nokkurra daga. Víkurfréttir leituðu til heilbrigðisráðherra og spurðu hann um deiluna og hvernig hann sæi hana leysast.Nú hafa heilsugæslulæknar sagt upp störfum á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og eru þegar farnir að leita fyrir sér atvinnu annarsstaðar - hvað vill ráðherra segja um þessa stöðu?
Málefni heilsugæslulækna hafa verið til umræðu við okkur um skeið og þeir hafa sett fram kröfu um að fá að reka sjálfstæðar stofur eins og aðrir sérfræðingar. Við höfum ekki gefið grænt ljós á það, því við óttumst að það stofni þver-faglegri uppbyggingu heilsugæslunnar í hættu. Hinsvegar erum við ekki með samningsumboðið við heilsugæslulækna, það er Kjaranefnd sem hefur það umboð sem að ég hygg að muni kveða upp sinn úrskurð innan nokkurra daga. Í þeim úrskurði verður kveðið á um laun þeirra og ákvæði um að vinna hluta af sínum störfum í afkastahvetjandi kerfi.

Sem sérfræðingar þá?
Já líkt og sérfræðingar gera en inn á heilsugæslustöðvunum, en það er skref í áttina að því sem þeir vilja en samt ekki sú krafa sem þeir hafa sett á oddinn.

Telurðu að úrskurður Kjaranefndar muni leysa þessa deilu?
Ég veit ekki nákvæmlega hvernig þessi úrskurður muni líta út, en hinsvegar vil ég þegar hann liggur fyrir, ræða við lækna sem hafa sagt upp bæði á Suðurnesjum og á öðrum stöðum og fara yfir stöðuna. Ég vona að það verði á næstu dögum.

Seturðu einhver tímamörk varðandi lausn þessarar deilu?
Það er mjög brýnt að ná niðurstöðu í þessu máli í þessum mánuði.

Hvað vill ráðherra segja við íbúa Suðurnesja sem þurfa að búa við þetta ástand?
Ég vonast til að það takist að leysa þetta mál með nýjum úrskurði og viðræðum við okkur í framhaldi af því að læknarnir endurskoði þessa ákvörðun sína.

Hvað gerist ef heilsugæslulæknum huggnast ekki úrskurður Kjaranefndar, mun ráðuneytið þá grípa til einhverra ráðstafana?
Ég vil ekkert segja um það á þessu stigi. Ég vil sjá úrskurðinn og ræða við þá aðila sem hafa sagt upp og í framhaldi mun ég þá tjá mig um það.
Bílakjarninn
Bílakjarninn