Teygði sig eftir GPS og ók á vegrið
Ökumaður sem ekki virti stöðvunarskyldu við gatnamót Ferjutröð/Klettatröð í Reykjanesbæ ók inn í hlið bifreiðar sem ekið var eftir Klettatröð. Ökumenn beggja bifreiðanna sem og tveir farþegar í þeim sögðust finna til verkja eftir óhappið. Þær voru óökufærar og fjarlægðar af slysstað með dráttarbifreið.
Þá ók ökumaður á vegrið milli akreina á Grindavíkurvegi þegar hann var að teygja sig eftir gps – tæki sem fallið hafði á gólf bifreiðarinnar.
Fáeinir hafa verið kærðir fyrir of hraðan akstur það sem af er vikunni.