Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Tengibygging íþróttamannvirkja fékk Steinsteypuverðlaunin 2015
Tengibygging íþróttamannvirkjanna í Grindavík.
Þriðjudagur 24. febrúar 2015 kl. 08:55

Tengibygging íþróttamannvirkja fékk Steinsteypuverðlaunin 2015

Steinsteypuverðlaunin 2015 voru veitt í fjórða sinn við hátíðlega athöfn á Steinsteypudeginum 2015 á Grand Hóteli þann 20. febrúar 2015 en þau eru veitt fyrir mannvirki þar sem saman fer frumleg og vönduð notkun á steinsteypu í manngerðu umhverfi. Verðlaunin í ár hlaut tengibygging íþróttamannvirkjanna í Grindavík. Frá þessu er greint á vefsíðu Grindavíkurbæjar. 

Í fréttatilkynningu frá Steinsteypufélagi Íslands segir:

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Að þessu sinni var það M-laga sjónsteypa í tengibyggingu íþróttamannvirkja í Grindavík sem hlaut verðlaunin. Álit dómnefndar er að þessi útfærsla sýni vel hvernig móta má steinsteypuna og sé skemmtileg tilbreyting við hið hefðbundna form. Byggingin tengir saman íþróttahús, sundlaug og íþróttasvæði utanhúss og er því eins og miðstöð eða hjarta svæðisins og örvar samnýtingu og tengsl þeirra bygginga sem fyrir eru. Það er Grindavíkurbær sem er eigandi verksins. Um hönnun sáu Batteríið arkitektar og VERKÍS hf., framkvæmd var í höndum Grindarinnar ehf. og Verksýnar en M-laga einingarnar eru Smellinn húseiningar frá BM Vallá. Viðurkenningin er veitt mannvirkinu og öllum þeim komu að hönnun og byggingu.

Valnefnd Steinsteypuverðlaunanna er skipuð eftirtöldum:

Þorbjörg Hólmgeirsdóttir, formaður nefndar og fulltrúi Steinsteypufélags Íslands

Ólafur H. Wallevik frá Nýsköpunarmiðstöð Íslands

Steinþór Kári Kárason frá Listaháskóla Íslands

Björn Marteinsson tilnefndur af Verkfræðingafélagi Íslands

Jóhann Einarsson tilnefndur af Arkitektafélagi Íslands

Það er Steinsteypufélag Íslands sem stendur fyrir verðlaununum. Verðlaunin voru fyrst veitt árið 2010. Eftirtalin mannvirki hafa hlotið verðlaunin:

2010 Göngubrýr yfir Njarðargötu og Hringbraut

2011 Sundlaugin Hofsósi 

2013 Nýja bíó