Telja ránið í Stapagrilli upplýst
Þrír voru handteknir í síðustu viku grunaðir um aðild að ráni í söluturninum Stapagrilli í Innri-Njarðvík. Bjarney Annelsdóttir, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurnesjum, segir að enginn hafi játað verknaðinn en lögreglan telji málið upplýst.
Mikill viðbúnaður var hjá lögreglu vegna ránsins og fjölmennt lið leitaði ræningjans. Meðal annars var sérsveit lögreglu virkjuð.