Tekur undir ályktun Félags eldri borgara á Suðurnesjum
Ályktun stjórnar Félags eldri borgara á Suðurnesjum var lögð fram fyrir bæjarráð Grindavíkurbæjar, þar sem hvatt er til þess að hjúkrunarheimili á Suðurnesjum verði á ábyrgð og stjórnað af Suðurnesjamönnum í framtíðinni, enda sé stefnt að því að sveitarfélögin taki yfir alla þjónustu við eldri borgara af ríkinu á næstu árum.
Bæjarráð Grindavíkurbæjar tekur undir ályktun stjórnar Félags eldri borgara á Suðurnesjum um að sveitarfélög á Suðurnesjum þurfi að standa saman um að næg hjúkrunarrými séu til á svæðinu.
Grindavíkurbær á í viðræðum við velferðarráðuneytið um mögulega yfirtöku á rekstri hjúkrunarheimilisins í Víðihlíð og heimahjúkrunar í Grindavík. Bæjarráð vísar ennfremur til bókunar sinnar frá 1326. fundi 3. september síðastliðinn.