Laugardagur 15. desember 2007 kl. 14:26
Teknir á hraðferð í rokinu

Tveir ökumenn voru teknir fyrir of hraðan akstur á Grindavíkurvegi í gær. Þeir mældust á 109 og 110 km hraða þar sem löglegur hámarkshraði er 90. Miðar það við bestu aðstæður sem var svo sannarlega ekki til að dreifa í hvassviðrinu í gær.
Í nótt voru tveir ökumenn teknir fyrir meintan ölvunarakstur og sex manns gistu fangageymslur sökum ölvunar.