Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Tekjur Isavia jukust um 1400 milljónir
Ný stjórn Isava, Ragnar Óskarsson, Heiða Kristín Helgadóttir, Sigrún Traustadóttir, Ingimundur Sigurpálsson og Matthías Páll Imsland.
Föstudagur 4. apríl 2014 kl. 10:43

Tekjur Isavia jukust um 1400 milljónir

Aðalfundur félagsins var haldinn í gær.

„Afkoma félagsins er mjög góð og í takt við þær áætlanir sem við höfum unnið eftir undanfarin ár og miða að því að standa undir nauðsynlegum framkvæmdum á Keflavíkurflugvelli. Næsta skref er að stækka suðurbyggingu í flugstöðinni til vesturs með sex nýjum brottfararhliðum og biðsvæðum fyrir farþega og er sú framkvæmd þegar hafin. Þá kynntum við nýlega breytingar á verslunarsvæði flugstöðvarinnar og auglýstum eftir tilboðum í verslunarreksturinn. Með þessu höfum við lagt góðan grunn að uppbyggingu á flugvellinum sem félagið getur byggt á af krafti til framtíðar,“ segir Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia, á aðalfundi félagsins sem haldinn var í gær.  

Auknar tekjur og umsvif

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Heildarafkoma Isavia í fyrra nam 3.217 milljónum króna sem er 2.479 milljóna aukning frá fyrra ári en af því námu tekjur af fjáreignum og fjárskuldum 2.528 milljónum króna milli ára. Heildareignir samstæðunnar voru 34.511 milljónir króna í árslok og þar af voru varanlegir rekstrarfjármunir og óefnislegar eignir um 29.036 milljónir.

Aukning varð á umsvifum Isavia á síðastliðnu ári líkt og undanfarin ár. Tekjur félagsins námu alls 19.810 milljónum króna og jukust um 1.414 milljónir króna, eða 7,7% frá fyrra ári. Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði jókst um 421 milljón króna og nam 2.818 milljónum króna.  Þessi afkoma er í takt við áætlanir félagins. Fjármagnsliðir voru jákvæðir um 1.200 milljónir en styrking krónunnar á árinu skilað umtalsverðum gengishagnaði vegna lána í erlendri mynt.

Leiðandi í ferðaþjónustu
Isavia er í hópi leiðandi fyrirtækja í ferðaþjónustu og hefur hvatakerfi félagsins á Keflavíkurflugvelli með beinum hætti aukið flug til og frá landinu. Sautján flugfélög héldu uppi áætlunarflugi til landsins á síðasta sumri og sex í vetur og farþegafjöldi jókst um 15,6% milli áranna 2012 og 2013.

Félagið undirbýr nú aukin umsvif á Keflavíkurflugvelli vegna farþegaaukningar svo tryggja megi áfram framúrskarandi þjónustu við flugrekendur og flugfarþega.  Gert er ráð fyrir um 9 milljarða króna fjárfestingu næstu tvö ár til aukningar á afköstum á Keflavíkurflugvelli, sem meðal annars felst í því að reisa viðbyggingu við vesturálmu suðurbyggingar flugstöðvarinnar með brottfararhliðum sem þjóna munu svonefndum fjarstæðum í grennd við flugstöðina sem farþegum verður ekið að flugvélum  í sérbyggðum rútubifreiðum.  

Þá er hafin stækkun farangurskerfis flugstöðvarinnar og fyrir dyrum standa gagngerar endurbætur á verslunar og veitingasvæðinu.  Ef horft er til fjárfestingaætlunar samstæðunnar í heild næstu tvö árin, bæði nýframkvæmdir og viðhaldsframkvæmdir þá nemur sú fjárhæð ríflega 15 milljörðum króna.

Framsækin dótturfélög
Dótturfélög Isavia eru Fríhöfnin og hugbúnaðarfyrirtækið Tern Systems. Miklar breytingar og umbætur urðu hjá Fríhöfninni á síðastliðnu ári með opnun glæsilegra verslana, nýrri heimasíðu og nýju útliti á ásýnd félagsins. Fríhöfnin hlaut margar viðurkenningar á árinu 2013 og var m.a valin besta fríhöfn Evrópu. Einnig fékk fyrirtækið starfsmenntaverðlaun SAF, viðurkenningu sem fjölskylduvænt fyrirtæki og sem framúrskarandi fyrirtæki samkvæmt könnun Creditinfo. Um 180 manns starfa hjá félaginu. Framkvæmdastjóri er Ásta Dís Óladóttir.

Tern Systems hefur í yfir 25 ár hannað og framleitt hugbúnað til flugumferðarstjórnar og þjálfunar flugumferðarstjóra og er með kerfi uppsett og í notkun hér á landi og víða í Evrópu, Asíu og Afríku.  Hjá fyrirtækinu starfa 35 manns auk þess sem mikið af þekkingu og reynslu er sótt til móðurfélagsins eftir þörfum og verkefnum.  Framkvæmdastjóri er Tómas Davíð Þorsteinsson.

Gott rekstrarútlit
Áætlað er að samanlögð velta Isavia samstæðunnar verði um 21,2 milljarður króna á árinu 2014, og að um þriðjungur verði í erlendri mynt.  Gert er ráð fyrir að rekstrarafkoma ársins 2014 verði álíka og rekstrarafkoma ársins 2013. Gert er ráð fyrir nýjum lántökur á árinu vegna fyrirhugaðra fjárfestinga, m.a. í endurbótum á flugstöðinni og flugvallarmannvirkjum á Keflavíkurflugvelli.

Stjórn félagsins
Í stjórn voru kosin Heiða Kristín Helgadóttir, Ingimundur Sigurpálsson, Matthías Páll Imsland, Sigrún Traustadóttir og Ragnar Óskarsson. Í varastjórn voru kosin Friðbjörg Matthíasdóttir, Jens Garðar Helgason, Jón Norðfjörð, Sigurbjörn Trausti Vilhjálmsson og Tryggvi Haraldsson.

Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia, segir markmið með sameiningu Keflavíkurflugvallar og Flugstoða með stofnun Isavia árið 2010 hafa náðst. Félagið sé tilbúið að ráðast í nauðsynlegar framkvæmdir til að mæta auknum straumi ferðamanna til landsins. Flugfarþegar á Keflavíkurflugvelli hafi fjölgað um 54% frá árinu 2010. Vænta má að farþegar verði orðnir yfir 7 milljónir árið 2023. Þessi öra fjölgun kalli á mikla uppbyggingu flugvallarmannvirkja á næstu árum.

Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia.

Fundargestir.