Tekist á um hvatagreiðslur
Tillaga minnihluta A-listans í bæjarstjórn Reykjanesbæjar um að hvatagreiðslur á næsta ári verði 24 þúsund krónur á barn, var felld af meirihluta Sjálfstæðismanna á bæjarstjórnarfundi í gær.
Fyrir fundinum lá tillaga þessa efnis fá A-lista þar sem fram kemur að hvatagreiðslur verði hægt að nýta til niðurgreiðlu gjalda vegna þátttöku í menningar,- íþrótta- og tómstundarstarfi ásamt því að niðurgreiða skólagjöld við Tónlistarskóla Reykjanesbæjar.
Árni Sigfússon, bæjarstjóri, lagði fram bókun fyrir hönd Sjálfstæðismanna þar sem vísað er áðurgerðra bókana í stjórn Íþrótta- og tómstundaráðs. Í henni kemur fram afstaða nefndarfulltrúa A-listans þar sem þeir fagna tillögu sjálfstæðismanna um 7 þúsund króna hvatagreiðslur í upphafi árs og leggja til stighækkandi hvatagreiðslur á næstu árum.
Í bókun Sjálfstæðismanna segir að þeir lýsi sig sammála þeirri hugmyndafræði sem fram kemur í bókun fulltrúa A-listans í Íþrótta- og tómstundaráði, að skoða stighækkandi greiðslur á næstu árum. Tillaga A-listans í bæjarstjórn sé ekki í samræmi við þessar bókanir A-listans í ÍT og sé því hafnað.
Guðbrandur Einarsson lagði þá fram aðra bókun þar sem segir:
„Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ voru farnir að kynna fjárhagsáætlun ársins 2008 í fjölmiðlum áður en að búið var að afgreiða hana endanlega í bæjarstjórn Reykjanesbæjar. Það var því ljóst að enginn vilji var hjá þeim til þess að gera einhverjar breytingar á áætlun milli umræðna. Í aðdraganda síðustu kosninga lagði A-listinn fram hugmynd um hvatagreiðslur sem væru kr. 2.000.- á barn á grunnskólaaldri á mánuði. Sú hugmynd var í anda þess sem önnur sveitarfélög voru að gera. Nú hafa mörg sveitarfélög gengið skrefi lengra og aukið þessar hvatagreiðslur. Grindavíkingar hafa t.d. tekið ákvörðun um að þátttaka barna í þrótta- og tómstundastarfi verði þeim að kostnaðarlausu. Það er því ljóst að grunnskólabörn í Reykjanesbæ þurfa að greiða miklu meira fyrir þátttöku sína í íþrótta- og tómstundastarfi en börn í mörgum öðrum sveitarfélögum.“