Tekist á um Hrafnistu HSS
- Fjörugar umræður á aukafundi í bæjarstjórn Reykjanesbæjar
Nokkuð fjörugar umræður urðu á aukafundi í bæjarstjórn Reykjanesbæjar á þriðjudagskvöld þar sem tekinn var til afgreiðslu samstarfssamningur við Hrafnistu um hjúkrunarrými í Reykjanesbæ sem samþykktur hafði verið í bæjarráði Reykjanesbæjar sl. fimmtudag. Tillaga bæjarfulltrúa Samfylkingar var sú að bæjarstjórn Reykjanesbæjar fresti afgreiðslu málsins þar til kostir sem í boði eru, m.a. möguleg aðkoma Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja (HSS) að rekstrinum, hafa verið metnir upp á nýtt og borgarafundur verið haldinn þar sem íbúum Reykjanesbæjar verði kynntir valkostir. Á fundinum kom fram að niðurskurður í fjárlögum til HSS og tekjumissir við það að missa 18 hjúkrunarrými sem stofnunin hefur séð um tímabundið á meðan byggingu Nesvalla hefur staðið er um 200 milljónir króna.
Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar, þau Friðjón Einarsson, Guðný Kristjánsdóttir og Eysteinn Eyjólfsson, greiddu atkvæði með því að fresta undirritun samningsins við Hrafnistu, skoða kosti betur og boða til íbúafundar. Einar Magnússon bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks greiddi þessari tillögu einnig atkvæði sitt. Kristinn Jakobsson, Framsóknarflokki, sat hjá við atkvæðagreiðsluna en sex bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins felldu tillöguna með atkvæðum sínum.
Eftir að ljóst var að tillagan um frestun hafi verið felld bókuðu fulltrúar Samfylkingar á eftirfarandi hátt:
„Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar harma ákvörðun meirihluta bæjarstjórnar Reykjanesbæjar um að neita að fresta ákvörðunum um rekstraraðila að Hjúkrunarheimilinu að Nesvöllum.
Mikil óvissa ríkir nú um framtíð Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, spáð er miklum samdrætti í tekjum og uppsagnir fyrirsjáanlegar á næstu mánuðum.
Bæjarfulltrúar Reykjanesbæjar verða að staldra við og leita svara hjá heilbrigðisráðherra um framtíð HSS. Meðan þessi óvissa ríkir getum við bæjarfulltrúar í bæjarstjórn Reykjanesbæjar ekki falið okkur á bak við að það er á ábyrgð ríkisins að bera ábyrgð á rekstri HSS.
Við þurfum að bera ábyrgð á samfélaginu okkur og því ber að staldra við í stað þess að æða áfram og láta starfsfólk HSS bíða í óvissu sem og samfélagið allt“.
Framtíð HSS á ekki að vera um rekstur hjúkrunarheimilis
Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, sagði í umræðum á fundinum að framtíð Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja eigi ekki að snúast um hvort sjúkrahúsið fái að reka nýtt hjúkrunarheimili í Reykjanesbæ eða ekki. „Við eigum að berjast fyrir HSS sem góðri sjúkrastofnun sem leggur áherslu á heilsugæsluþjónustu við alla íbúa, góða stoðþjónustu og fullkomna fæðingarþjónustu. Það að ríkið hafi svipt HSS fjármunum enn eina ferðina og rétt í staðin tímabundna dúsu, snuð til eins árs, sem var andvirði 18 hjúkrunarrúma á meðan Nesvellir voru ekki komnir í notkun á ekki að vera notað af HSS sjálfu, ekki af starfsmönnum eða stjórnendum sem ástæða fyrir því að menn geti ekki haldið áfram. Það er verið að færa fókusinn í baráttunni í rangar áttir. Það þarf að berjast fyrir fjárveitingum til sjúkraþjónustu á fjárlögum. Það á ekki að taka peningana úr hjúkrunarheimili. Þetta finnst mér gríðarlega mikilvægt að við ítrekum og áttum okkur á. Mér finnst það ósanngjarnt að það sé verið að setja ákvörðun okkar um nýtt hjúkrunarheimili í Reykjanesbæ í eitthvað annað samhengi,“ sagði Árni á fundinum.
Árni sagðist jafnframt telja að HSS eigi að sinna öðrum verkefnum en að reka hjúkurnarheimili. Þá lagði hann áherslu að að Reykjanesbær væri að horfa til þeirrar vönduðu þjónustu sem Hrafnista getur veitt. „Það er ekkert verið að gera lítið úr HSS með því að velja leið Hrafnistu. Það er ósanngjarnt að segja það þegar verið er að velja á milli tveggja góðra kosta,“ sagði Árni Sigfússon jafnframt.
Bæjarstjóri sagði að forsvarsmenn Hrafnistu hafi verið spurðir um ýmsa þætti varðandi starfsfólk og kaup á þjónustu. Hrafnista hafi fullvissað hann um að leitað verði eftir starfsfólki af Suðurnesjum og að fyrst verði leitað til núverandi starfsmanna Dvalarheimila aldraðra Suðurnesjum (DS) og síðan verði rætt við starfsfólk HSS. Einnig verður leitað til fyrirtækja á Suðurnesjum með mat fyrir hjúkrunarheimilið og til að sinna viðhaldi.
„Fyrst og fremst vorum við að horfa á gæði og reynslu Hrafnistu til 70 ára og sérhæfingu þeirra á þessu sviði,“ sagði bæjarstjóri. Hann benti jafnframt á að bókun allra bæjarfulltrúa í bæjarstjórn sem lögð var fram við upphaf fundar væri vilji til að berjast fyrir hagsmunum Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja á réttum vettvangi.
Óvissa ríkir á HSS
Friðjón Einarsson, bæjarfulltrúi Samfylkingar sagðist geta tekið undir margt af því sem bæjarstjóri hefði sagt en hann væri einnig ósammála mörgu. „Við búum í litlu samfélagi og verðum að taka tillit til þess sem gerist utan þessara veggja [bæjarstjórnar]. Nú ríkir óvissa á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og við verðum að staldra við og skoða málin upp á nýtt. Við getum ekki bara sagt að við séum að vinna faglega með Hrafnistu. Málið er bara mikið stærra en það. Þetta á að snúast um samfélagið okkar. Ekki bara rýmin á Nesvöllum,“ sagði Friðjón og bætti við: „Við verðum að bregðast við miklum niðurskurði á fjárlögum til HSS. Við verðum að horfa á þetta sem einn pakka“.
Réttmæt krafa að fresta samningi
Eysteinn Eyjólfsson, bæjarfulltrúi Samfylkingar, segir samninginn við Hrafnistu brenna á bæjarbúum og því leggi bæjarfulltrúar Samfylkingar fram frestunartillöguna. Hann benti einnig á að tæplega 900 manns hafi skrifað undir móttmæli gegn samningnum. „Það hefur oft verið minni ástæða til að hlusta á það sem bæjarbúar hafa sagt. Samstaða og samvinna Suðurnesjamanna skiptir öllu máli við uppbyggingu hjúkrunarheimila á Suðurnesjum. Samstaðan skilaði okkur Nesvöllum sem er að opna á nýju ári 60 rými. Ef við ætlum að ná í gegn frekari uppbyggingu hjúkrunarrýma á Suðurnesjum þá verðum við að standa saman,“ sagði Eysteinn.
„Í ferlinu öllu hef ég haft fyrirvara á samningnum við Hrafnistu. Ég hef alla tíð verið á því að stjórn nærþjónustu eigi að vera heima í héraði. Ég er þess fullviss að á Suðurnesjum sé til staðar metnaður og þekking til að reka fullkomið hjúkrunarheimili. Þá er ég þeirrar skoðunar að við eigum að vernda störf á Suðurnesjum. Ég spyr mig að því hvort leitað hafi verið samninga við HSS og Hrafnistu á sömu forsendum?,“ sagði Eysteinn og bætti við: „Ég tel hreint óráð að samþykkja samninginn við Hrafnistu eins og hann er. Mér finnst að bæjarstjórn eigi að fresta afgreiðslu samningsins og leita aftur til HSS og athuga hvort HSS geti rekið hjúkrunarheimilið á Nesvöllum á svipuðum forsendum og Hrafnista. Þá verði kostirnir kynntir fyrir íbúum á íbúafundi og taka síðan ákvörðun. Það finnst mér sanngjarnt og rétt. Við höfum tækifæri til að sýna í verki stuðning við HSS með því að fresta samningi við Hrafnistu. Þetta er ekki ósanngjörn krafa. Þetta er réttmæt krafa,“ sagði Eysteinn. Síðar á fundinum varpaði hann fram þeirri spurningu hvort Heilbrigðisstofun Suðurnesja hafi notið sannmælis þegar kom að samningagerð milli Reykjanesbæjar og Hrafnistu.
Unnið af heilindum
Baldur Guðmundsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, átti sæti í nefnd bæjarstjórnar sem skoðaði þá kosti að semja við HSS eða Hrafnistu. Hann sagði á bæjarstjórnarfundinum á þriðjudagskvöld að hann hafi lagt af stað með það veganesti að vanda sig þegar kæmi að því að velja þá sem kæmu að rekstrinum. Hann sagði að þau sem sæti áttu í nefndinni hafi skoðað alla hluti vel og velt við öllum steinum. „Ég gerði þetta af heilindum og það sem réði úrslitum er mikla reynsla Hrafnistu. Þeir vinna eingöngu að málefnum aldraðra. Ef við þurfum að taka upp málin aftur þá held ég að ég komist afur að sömu niðurstöðu,“ sagði Baldur.
Starfsfólk DS vildi allt til Hrafnistu
Kristinn Jakobsson, bæjarfulltrúi Framsóknarflokks, átti einnig sæti í nefndinni sem komst að þeirri niðurstöðu að samið yrði við Hrafnistu.
„Ég las og ég hlustaði. Ég mat og ég tók ákvörðun. Ég var þess fullviss að Heilbrigðisstofnun Suðurnesja fengi samninginn. Það sem breytti skoðun minni voru starfsmenn DS. Ég spurði starfsfólkið hvar það vildi helst starfa. Hvert myndi það ráðleggja okkur að fara, hvar samningurinn ætti að vera. Allar sem ég ræddi við sögðu „Hrafnista“. Það kom svolítið á mig. Mér brá við það. Ég spurði hvers vegna og fékk þau svör að Hrafnista væri sú stofnun sem allir vildu sækja í. Allir vilja bera sig saman við Hrafnistu. Allir vilja eiga samskonar hjúkrunarheimili og Hrafista er að bjóða uppá. Þetta eru ekki mín orð, þetta eru þeirra orð,“ sagði Kristinn og bætti við:„Við skuldum öldruðum sjúkum á Suðurnesjum Nesvelli og að þeir fái bestu mögulegu aðstæður á sínu ævikvöldi“.
Einar ekki samstíga félögum sínum
Einar Magnússon, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, fylgir ekki flokksfélögum sínum í bæjarstjórninni í málinu og vildi fresta samningi við Hrafnistu.
„Þetta er stórt mál sem við erum að fjalla um núna. Við þurfum að berjast fyrir auknu fjármagni fyrir HSS,“ sagði Einar á fundinum og bætti við: „Varðandi hjúkrunarheimilið. Ég sem bæjarfulltrúi get ekki samþykkt þennan samstarfssamning sem búið er að gera við Hrafnistu um hjúkrunarheimili í Reykjanesbæ. Sem heimamaður get ég ekki horft framhjá öflugri stofnun í heimabyggð sem hefur fulla burði og fagmennsku til að sjá um rekstur heimilisins. Auk þess sem samlegðaráhrifin hefðu nýst að öllu leiti hér á svæðinu. Ég er þess fullviss að rekstur hjúkrunarheimilisins hefði styrkt stoðir HSS“.
Þarf að standa með ákvörðun og sannfæringu sinni
Árni Sigfússon bæjarstjóri kom aftur í pontu og áréttaði að tillagan sem allir bæjarfulltrúar Reykjanesbæjar skrifuðu undir væri að koma fram á réttum tíma vegna framlagningar fjárlaga.
„Við eigum ekki að svara niðurskurði ríkisins á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja með því að fá hjúkrunarheimili í bætur. Það er algjörlega alvarlega röng aðgerð. Við höfum farið vandlega yfir þetta og stundum þarf maður að standa með ákvörðun og sannfæringu sinni.
Það eru mikil mistök að draga tennur úr baráttu okkar fyrir alvöru baráttu; fyrir því að standa undir grunnþjónustu Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja. Það eru alvarleg mistök að við snúum þessu yfir í þessa átt. Við eigum bara að krefjast þess að sjálfstæðismenn og framsóknarmenn í ríkisstjórn leiðrétti þessi mistök. Það veikir baráttu okkar ef við ætlum að láta stjórnvöld telja að þau þurfi ekki að leiðrétta óréttlætið úr því að peningar vegna hjúkrunarheimilis eru að koma til HSS. Höldum þessu algjörlega aðskyldu,“ sagði Árni.
Þurfum aukið fjármagn í HSS svo íbúarnir fái notið aukinnar þjónustu
Gunnar Þórarinsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, tók undir með öðrum bæjarfulltrúum að berjast þurfi fyrir þeirri þjónustu sem var skorin af á sínum tíma hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. „Við þurfum aukið fjármagn í HSS svo íbúarnir fái notið aukinnar þjónustu. Við erum í dag að berjast á röngum velli. Við þurfum að leita til Alþingis og fá það í lið með okkur til að fá aukið fjármagn hingað,“ sagði Gunnar.
Guðný Krisjánsdóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingar, sagðist styðja þá tillögu að fresta undirritun samnings við Hrafnistu. Hún sagðist hins vegar spyrja sig að því hvort staða Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja myndi lagast við það að taka yfir rekstur hjúkurnarheimilis að Nesvöllum. „Ég styð það að undirritun samningsins verði frestað til að kanna þær spurningar sem upp eru komnar en ég veit ekki hvort önnur niðurstaða fáist í málið,“ sagði Guðný.
Böðvar Jónsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, sagði málið vera búið að fá mikla umfjöllun á nokkrum stöðum í bæjarkerfinu. „Menn töldu að menn fengju betri þjónustu fyrir eldri borgara með samningi við Hrafnistu vegna reynslu þeirra og rekstrarsögu.
Enginn tilgangur að fresta undirritun samningsins, bara til að fresta,“ sagði Böðvar.
Svo fór að tillaga um frestun á samningi við Hrafnistu var felld eins og greint er frá að framan. Hins vegar samþykktu allir bæjarfulltrúar bæjarstjórnar Reykjanesbæjar harðorða ályktun sem beint er til þingmanna Suðurkjördæmis. Sú ályktun er í annarri frétt.
Texti og myndir: Hilmar Bragi Bárðarson