Fréttir

Tekinn við skipulagða glæpastarfsemi og þjófnað í Leifsstöð
Úr flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Þriðjudagur 18. desember 2018 kl. 17:31

Tekinn við skipulagða glæpastarfsemi og þjófnað í Leifsstöð

Lögreglumenn í flugstöðvardeild lögreglunnar á Suðurnesjum höfðu um helgina hendur í hári erlends karlmann sem hefur farið ránshendi um fríhafnarverslanir í Þýskalandi, Finnlandi og Írlandi og nú síðast í Flugstöð Leifs Eiríkssonar.  Tilkynning hafði borist um að maðurinn hefði stolið dýrri grænni úlpu í verslun í FLE. Lögreglumenn hófu þegar leit í flugstöðinni en lögð var sérstök áhersla á að finna viðkomandi vegna fjölda þjófnarðarmála sem upp hafa komið á árinu og virðast vera skipulögð glæpastarfsemi. Sú leit bar ekki árangur en lögreglan hafði spurnir af manni sem lýsingin gat átt við og hafði sá keypt sér rútumiða. Skömmu síðar stöðvuðu lögreglumenn rútu  á Reykjanesbraut og þar sat sá grunaði  með úlpuna, sem verðmiðinn var enn á, sér við hlið. Í  farangri sem hann hafði meðferðis var meint þýfi sem einnig kom úr fríhafnarverslunum í FLE. Var þar um að ræða fatnað og snyrtivörur sem enn voru í umbúðunum. Verðmæti varningsins nam 240 þúsund krónum.

 Maðurinn hefur verið handtekinn í þremur ofangreindu löndunum fyrir sömu iðju.

Public deli
Public deli