Tekinn sofandi með fíkniefni í bílnum
Lögregla handtók mann sem svaf í bifreið sinni í miðbæ Keflavíkur í gærkvöldi. Var hann grunaður um fíkniefnabrot og kom á daginn að við leit í bifreiðinni fannst lítilræði af meintum fíkniefnum og áhöld ætluð til neyslu þeirra. Maðurinn var frjáls ferða sinna að lokinni skýrslutöku.
Þá námu lögreglumenn númeraspjöld af sjö bifreiðum í Reykjanesbæ í nótt vegna vanrækslu á færslu bifreiðanna til skoðunar.