Bygg
Bygg

Fréttir

Tekinn með stera í annarlegu ástandi
Þriðjudagur 12. júní 2012 kl. 10:33

Tekinn með stera í annarlegu ástandi



Tilkynning barst til lögreglunnar á Suðurnesjum í fyrradag þess efnis að maður væri að reyna að komast inn í bíla í Keflavík. Lögreglumenn fundu manninn fljótlega og var hann handtekinn og færður á lögreglustöð. Hann reyndist vera með stera í fljótandi formi í fórum sínum, auk allmikilla peninga. Hann var í annarlegu ástandi og reyndist útilokað að ræða við hann að svo komnu máli. Hann var því látinn sofa úr sér í fangaklefa, en tekin af honum skýrsla að því loknu og hann látinn laus.

Bílakjarninn
Bílakjarninn