Tekinn með nokkur þúsund E-töflur
Tollverðir í Flugstöð Leifs Eiríkssonar fundu á miðvikudagskvöld nokkur þúsund E-töflur í fórum Íslendings á fertugsaldri sem var að koma frá Kaupmannahöfn. Hann var í gær úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjaness. Lögreglan á Suðurnesjum rannsakar málið.