Fréttir

Tekinn með kókaín í nærbuxunum
Mánudagur 4. desember 2017 kl. 05:00

Tekinn með kókaín í nærbuxunum

Tollverðir í Flugstöð Leifs Eiríkssonar stöðvuðu í nóvember erlendan karlmann sem reyndist vera með umtalsvert magn af kókaíni innan klæða. Um var að ræða pakka sem innihélt um 350 grömm af kókaíni. Var hann saumaður fastur í nærbuxur mannsins. Tollverðir haldlögðu efnið.

Maðurinn, sem búsettur hefur verið hér á landi um skeið, var að koma frá Barcelona á Spáni. Í för með honum var kona og handtók lögreglan á Suðurnesjum þau bæði. Þau voru úrskurðuð í gæsluvarðhald en eru nú laus úr því og rannsókn málsins á lokastigi samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurnesjum.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024