Tekinn með hassmola
Lögreglan í Keflavík stöðvaði í gær bifreið í Reykjanesbæ þar sem grunur um fíkniefnamisferli vaknaði. Ökumaður var handtekinn og afhenti lögreglunni þrjá hassmola og í kjölfarið var leitað í bílnum, en ekki fannst meira af fíkniefnum. Eftir skýrslutöku var maðurinn látinn laus og telst málið upplýst.