Tekinn í Póllandi með þýfi úr fríhöfninni
Karlmaður sem handtekinn var á flugvellinum í Varsjá í Póllandi á Þorláksmessu, vegna þjófnaðar úr flugstöðinni þar, reyndist hafa fleira á samviskunni. Hann var að koma með flugi frá Keflavíkurflugvelli og í farangri hans fundu pólskir lögreglumenn umtalsvert magn af ilmvötnum og áfengi sem reyndist hafa verið stolið í fríhöfninni í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Um var að ræða varning að verðmæti hátt á þriðja hundrað þúsund krónur. Við skoðun á eftirlitsmyndavélum í fríhöfninni sást hvar maðurinn var að hnupla vörunum.
Málið er í vinnslu.
Þá var brotist inn í bifreið í Keflavík og tjáði eigandi hennar lögreglunni á Suðurnesjum að hann saknaði meðal annars jólagjafar og veskis með greiðslukorti. Kortið var komið í notkun þegar þjófnaðurinn uppgötvaðist og lét eigandinn loka því.