Tekinn á tvöföldum hámarkshraða
Þrír ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur á Suðurnesjum í gær og mældist sá er hraðast ók miðað við hámarkshraða á 60 km/klst þar sem leyfður hraði er 30 km/klst. Þrír ökumenn voru kærðir fyrir ranga notkun þokuljósa við akstur. Einn ökumaður var kærður fyrir að virða ekki stöðvunarskyldu við gatnamót.