Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Tekinn á stolinni bifreið
Mánudagur 9. október 2017 kl. 09:10

Tekinn á stolinni bifreið

Rúmlega tvítugur ökumaður sem lögreglan á Suðurnesjum handtók í vikunni reyndist hafa ýmislegt á samviskunni. Hann var grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Þá ók hann svipur ökuréttindum og var á stolinni bifreið. Loks var hann með hníf í fórum sínum. Í tösku sem var í bifreið hans fundust kveikjuláslyklar að sex bifreiðum.
Lyklunum hafði verið stolið þegar brotist var inn á bifreiðaverkstæði nýverið.

Ökumaðurinn var fluttur í annað umdæmi eftir að lögreglan á Suðurnesjum hafði tekið af honum skýrslu því í því umdæmi þurfti lögregla einnig að hafa tal af honum.
Þá voru tveir einstaklingar einnig handteknir grunaðir um um þjófnað á annarri bifreið. Annar þeirra viðurkenndi að hafa ekið bifreiðinni, neyslu fíkniefna og að vera sviptur ökuréttindum. Höfðu viðkomandi skotist á Suðurnesin til að skoða íbúð að eigin sögn.
 

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024