Tekinn á 155 km hraða
Fjórir ökumenn voru í gær kærðir fyrir hraðakstur í umdæmi lögreglunnar í Keflavík.
Einn var tekinn á 155 km hraða það sem hámarkshraði er 90 km, annar á 122 km hraða, sá þriðji á 117 km og einn til viðbótar á 115 km.
Þá voru tveir ökumenn stöðvaðir fyrir að nota ekki öryggisbelti við akstur eins og lög gera ráð fyrir.